2430. Sæljón RE 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæljón RE 19 kemur hér til hafnar í Keflavík eitt haustið eftir dragnótaróður í Bugtinni. Báturinn er einn hinna svokölluðu Kínabáta sem smíðaðir voru í Dalian í Kína og komu til landsins á árinu 2001. Sæljón var smíðað fyrir Sæljón ehf. í Reykjavík og leysti af hólmi 29 … Halda áfram að lesa Sæljón RE 19
Flokkur: Bátar
Benni Sæm að veiðum
2430. Benni Sæm GK 26 ex Sæljón RE 19. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir sem nú birtast í gær af dragnótabátnum Benna Sæm GK 26 þar sem hann var að veiðum á Keflavík sem er rétt austan við Krísuvíkurberg, út af svo kölluðum Bergendum. Benni Sæm hét upphaflega Sæljón RE … Halda áfram að lesa Benni Sæm að veiðum
Skálafell ÁR 50
100. Skálafell ÁR 50 ex Haförn SK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Skálafell ÁR 50, sem hér sést koma til hafnar í Reykjavík, fór í brotjárn árið 2014 en það var smíðað árið 1959. Smíðin fór fram í Noregi en báturinn var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga og fékk hann nafnið Hoffell SU 80. Síðar hét hann … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 50
Eldeyjar Boði GK 24
971. Eldeyjar Boði GK 24 ex Boði GK 24. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Eldeyjar Boði GK 24 hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102 og var smíðaður fyrir Miðfell hf. í Hnífsdal árið 1965. Smíðin fór fram í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í A-Þýskalandi. Báturinn var sá fjórði sem kom í fyrri seríunni sem taldi tíu … Halda áfram að lesa Eldeyjar Boði GK 24
Aðalvík KE 95
971. Aðalvík KE 95 ex Eldeyjarboði GK 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aðalvík KE 95 liggur hér við bryggju í Njarðvík um árið og sjá má glitta í Njarðvík KE 93 fyrir aftan hana. Við hina bryggjuna er Ágúst Guðmundsson GK 95. Aðalvík var smíðuð í Boizenburg í Þýskalandi árið 1965 og hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir … Halda áfram að lesa Aðalvík KE 95
Jökull hélt til veiða í kvöld
2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jökull ÞH 299 hélt til veiða frá Húsavík í kvöld eftir Sjómannadagsfrí en báturinn stundar grálúðuveiðar í net. Spáin frekar leiðinleg og kallarnir fengu norðanáttina beint í nefið. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 … Halda áfram að lesa Jökull hélt til veiða í kvöld
Til hamingju með daginn sjómenn
Bátar fánum prýddir í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Með þessari mynd sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution.
Dalaröstin í skemmtisiglingu
1639. Dalaröst ÞH 40 ex Dalaröst ÁR 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Þá er Sjómannadagurinn framundan og því upplagt að birta eina gamla mynd af Dalaröstinni í skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2007. Útgerðarfélagið Flóki ehf. keypti bátinn frá Þorlákshöfn árið 1999 en þar bar hann nafnið Dalaröst ÁR 63. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 … Halda áfram að lesa Dalaröstin í skemmtisiglingu
Helga RE 47
1417. Helga RE 47 ex Ásrún RE 277. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helga RE 47 kemur hér að bryggju í Sandgerði um árið en bátyurinn bar þetta nafn árin 2000-2002. Báturinn hét upphaflega Sólrún EA 151 og var smíðaður fyrir Sólrúnu h/f á Litla-Árskógssandi en hún var síðasti báturinn sem var smíðaður hjá Skipasmíðastöð KEA. Síðar … Halda áfram að lesa Helga RE 47
Sæbjörg ST 7
1054. ex Júlíus ÁR 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæbjörg ST 7 er hér við bryggju á Húsavík um árið en bátar Strandamanna sem stunduðu úthafsrækjuveiðar áttu það til að koma og landa á Húsavík þaðan sem aflinn var keyrður vestur til vinnslu. Báturinn var smíðaður hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi árið 1967 og … Halda áfram að lesa Sæbjörg ST 7









