Bergey VE 44 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær

2964. Bergey VE 44 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Bergey VE 44 kemur hér til hafnar í Grindavík í gærmorgun með fullfermi líkt og systurskipið Vestmannaey VE 54.

Þær lönduðu einnig fullfermi í Þorlákshöfn sl. fimmtudag en það hefur verið mokfiskirí hjá þeim við Surtinn undanfarið og stutt að fara.

Bergey er í eigu Bergs- Hugins hf. dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Nor­egi.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd