Kotey GK 121

2104. Kotey GK 121 ex Sædís HF 170. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Línu- og handfærabáturinn Kotey GK 121 kemur hér að landi í Grindavík um árið en þaðan var báturinn gerður út árin 2000 til 2002.

Báturinn hét upphaflega Jón Björn HF 77 og var smíðaður af Fossplasti hf. árið 1990 en smíðin fór fram á Selfossi.

Árið 1991 var báturinn kominn til Grundarfjarðar þar sem hann fékk nafnið Örninn SH 74 en hann stoppaði stutt þar. 1992 var báturinn skráður í Hafnarfirði og nafnið sem hann fékk var Sædís HF 170.

Árið 2000 var báturinn seldur til Grindavíkur þar sem hann fékk nafnið Kotey GK 121. 2002 er báturinn keyptur til Sandgerðis þar sem hann fékk nafnið Mummi GK 121.

Það var svo árið 2005 sem báturinn var seldur norður á Hofsós þar sem hann fékk nafnið Þorgrímur SK 27 og það nafn hefur hann borið síðan. Heimild aba.is

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd