
Stefán Rögnvaldsson EA 345 kemur hér að landi á Dalvík vorið 2006 en hann þaðan gerði samnefnt útgerðarfélag bátinn út í um tuttugu ár.
Báturinn
Báturinn hét upphaflega Jón Guðmundsson KE 4, síðar bar hann nöfnin,Ísleifur ÁR, Askur,ÁR, Guðbjörg ST, Laufey ÍS, Dagur SI og Egill BA.
Stefán Rögnvaldsson hf. keypti hann frá Patreksfirði 1987 og gaf honum nafnið Stefán Rögnvaldsson EA 345. Fyrirtækið var selt á Blönduós í október 2007 og báturinn varð HU 345.
Hann fékk síðar nafnið Stefán HU 38 og því næst Stefán BA 48. Síðasta nafn hans var Markús ÍS 777.
Þann 19. september 2013 var Markús ÍS 777 í drætti frá Flateyri til Ísafjarðar en ekki vildi betur til en svo að báturinn sökk á leiðinni.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution