
Á þessari mynd sem tekin var við Reykjavíkurhöfn fyrir 25 árum upp á dag gefur að líta Garp SH 266 frá Grundarfirði.
Báturinn hét upphaflega Vísir SH 77 og var með heimahöfn í Ólafsvík.
Hann er úr smiðju Baldurs Halldórssonar á Hlíðarenda við Akureyri, var smíðaður árið 1988 og er af Starletgerð.
Báturinn var lengdur árið 1995 og mælist tæp 11 BT að stærð.
Vísir var seldur á Grundarfjörð árið 1989 og fékk nafnið Örninn SH 74.
Árið 1991 fékk hann nafnið Garpur SH 266 sem hann bar til ársins 2002 er hann fékk aftur sitt fyrsta nafn, Vísir SH 77. Heimild aba.is
Hempill ehf. gerir Vísi SH 77 út í dag og er heimahöfn hans í Ólafsvík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution