Meira af Rúnu RE 150

Rúna RE 150 ex Fredvang Junior. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér koma þrjár myndir af Rúnu RE 150 sem fjallað var um á síðunni í gær en eins og þar kom fram var báturinn lengdur í tvígang eftir að hann kom í íslenska bátaflotann.

Rúna RE 150 var keypt frá Noregi sumarið 1991 en báturinn var smíðaður árið 1988 hjá Tomma Aluminium A/S í Husby.

Rúna RE 150 var lengd í tvígang en hún var upphaflega 15,05 metrar að lengd.

Fyrst var hún skutlengd árið 1994 og síðan lengd um 3,7 metra árið 1998 og mældist eftir það 20,42 metrar að lengd.

Þegar ný og stærri Rúna RE 150 leysti þessa af hólmi árið 2001 var báturinn seldur til Keflavíkur þar sem hann fékk nafnið Árni KE 89.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd