
Línubáturinn Núpur BA 69 frá Patreksfirði kemur hér til hafnar á Húsavík haustið 2005 en það var Oddi hf. sem gerði hann út.
Núpur, sem keyptur var frá Færeyjum árið 1981, var smíðaður í Póllandi árið 1976 og hét upphaflega Nupur KG 35 með heimahöfn í Klakksvík.
Haukur Sigtryggur sendi miða:
1591….Núpur BA 4… TF-PR.
IMO: 7637981.
MMSI: 251257110.
Skipasmíðastöð: Stocznia Szczecinska. Stettin. Pólland. 1976.
2022 = Brl: 238. BT: 358. NT: 107.
ML: 38,69. SL: 35,51. B: 7,60. D: 5,70.
Mótor 1975 MWM 596 kw 811 hö.
Ný vél 2002 Caterpillar 721 kw.
Nupur KG 35. Útg: P/r Núpur. Klakksvík. Færeyjum. (1976 – 1981).
Seldur til Íslands 20.05.1981.
Núpur BA 4. Útg: Skjöldur h.f. Patreksfirði. (1981 – 1982).
Núpur BA 4. Útg: Þórsberg h.f. Tálknafirði. (1982 – 1983).
Núpur BA 4. Útg: Kaldbakur h.f. Grenivík. (1983 – 1985).
Núpur ÞH 3. Útg: Kaldbakur h.f. Grenivík. (1985 – 1989).
Núpur SU 3. Útg: Þór h.f. Eskifirði. (1989 – 1990).
Núpur BA 69. Útg: Oddi h.f. Patreksfirði. (1990 – 2023).
Þegar Oddi hf. keypti Örvar SH 777 árið 2023 fékk hann nafnið Núpur BA 69 en sá er hér um ræðir var lagt og fékk BA 690 sem hann bar þar til hann var seldur úr landi í lok árs 2024.
Núpur var lengdur á Spáni árið 1998 og eftir að hann strandaði í nóvember árið 2001 voru gerðar á honum viðamiklar endurbætur í Vestmannaeyjum, m.a skipt um brú.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution