Minna BA 322

2280. Minna BA 322 ex Skarfaklettur BA 322. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Mynd þessi af Minnu BA 322 var tekin á Siglufirði í byrjun júnímánaðar árið 2005.

Minna hét upphaflega Skarfaklettur GK 302 og var smíðaður hjá Trefjum í hafnarfirði árið 1999. Heimahöfn Sandgerði.

Frá árinu 2002 hét báturinn Skarfaklettur BA 322 með heimahöfn á Tálknafirði en tveim árum síðar fékk hann nafnið Minna BA 322.

Eins og áður segir var myndin tekin í júníbyrjun árið 2005 en sama ár fékk Minna einkennsistafina SI og númerið 322.

Ári síðar fékk báturinn nafnið Ebba HF 43 með heimahöfn í Hafnarfirði og árið 2007 hét hann Ebba SH 29 með heimahöfn á Hellisandi.

Ebba SH 29 var seld til Grænlands vorið 2009.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd