Vestri BA 63

3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Patreksfjarðartogarinn Vestri BA 63 kom til Húsavíkur í morgun en hann er nú gerður út til úthafsrækjuveiða.

Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti togarann frá Noregi og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar þann 9. apríl árið 2022. 

Í Noregi hét togarinn Tobis en hér fékk hann nafnið Vestri BA 63 og kom í stað eldri og minni báts með sama nafni.

Vestri BA 63 var smíðaður í Danmörku árið 2009 og er 40 metra langur og 580 tonn að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd