
Hér gefur að líta frystitogarann Sólberg ÓF 1 á siglingu á Ólafsfirði þann 19. maí árið 2017 en þá kom hann til landsins í fyrsta skipti.
Togarinn var smíðaður fyrir Ramma hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi.
Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á breidd og alls 3.720 brúttótonn að stærð.
Ísfélagið hf. gerir Sólbergið út í dag eftir sameiningu þess við Rammann hf. í Fjallabyggð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.