
Nóta- og togskipið Viking 1 er á þessum myndum Guðvarðs Jónssonar að veiðum við Óman en eins og glöggir menn sjá er þetta fyrrum Hákon EA 148.
Skipið var selt til Óman í fyrra og eftir nokkurra mánaða klössun hjá Slippstöðinni á Akureyri lét það úr höfn skömmu fyrir jól og sigldi suður um höfin.
Heimahöfn þess er Port Sultan Qaboos (PSQ).
Viking 1 var smíðaður í Asmarskipasmíðastöðina í Talcahuano í Chile árið 2001 og er 65,95 metrar að lengd, breidd skipsins er 14,40 metrar og það mælist 3003 BT að stærð.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution