Sæljón RE 19

1499. Sæljón RE 19 ex Flosi ÍS 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Sæljón RE 19 kemur hér úr róðri um árið en báturinn hét upphaflega Flosi ÍS 15 og er 29 brl. að stærð. Báturinn var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1977.

Árið 1983 var báturinn keyptur til Reykjavíkur þar sem hann fékk nafnið Sæljón RE 19 og það nafn bar hann næstu 17-18 árin.

Hér má lesa nánar um bátinn sem heitir Svanur RE 99 í dag.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd