Kap VE 4 að draga netin

Kap VE 4 ex Kap II VE 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Jón Steinar tók þessar myndir í dag af netabátnum Kap VE 4 þar sem hann var að draga netin rétt vestan við Grindavík.

Kap hefur róið frá Grundarfirði frá því í byrjun janúar en kom suður fyrir Reykjanesið síðastliðna nótt og lagði tíu trossur hér rétt vestan við Grindavík.

Þeir héldu svo út klukkan 8 í morgun til að draga. Að sögn Kristgeirs Arnars Ólafssonar skipstjóra var aflinn um 10 eftir daginn en þeir lögðust að bryggju í Grindavík er klukkan var að verða fimm núna síðdegis.

Kap hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 var smíðaður í Stálvík árið 1967 fyrir Þórð Óskarsson hf. á Akranesi.

Hér má lesa nánar um Kap.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd