
Þessi mynd var tekin snemma í marsmánuði árið 2003 en þá hafði Sveinn Sveinsson BA 325 nýlega verið keyptur til Húsavíkur.
Báturinn fékk nokkrum dögum síðar nafnið Hinni ÞH 70 en upphaflega hét hann Neisti HU 5 og var smíðaður hjá Básum hf. í Hafnarfirði árið 1979.
Hér má lesa nánar um bátinn sem heitir í dag Draumur og er gerður til hvalaskoðunar frá Dalvík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.