
Þorsteinn BA 1 hét upphaflega Faxafell GK 110 og var smíðaður í Garðabær árið 1989.
Þegar þessi mynd var tekin haustið 2010 var nýbúið að kaupa bátinn til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Haförn ÞH 26.
Eisn og áður segir hét báturinn upphaflega Faxafell GK 110 en fékk síðar nöfnin Blíðfari GK 275, Von SF 1, Mundi SF 1 og Þorsteinn BA 1.
Báturinn, sem er búinn 450 hestafla aðalvél frá árinu 2001, var lengdur 1993 og mælist 71 brúttótonn (29,9 brúttórúmlestir) að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution