Tekið við endanum

1487. Alli Júl ÞH 5 ex Ásbjörg RE 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999.

Þessi mynd var tekin í desembermánuði árið 1999 og sýnir Þórð heitinn Ásgeirsson taka á móti endanum hjá Alla Júl ÞH 5 sem sonarsonur hans, Þórður Birgisson, gerði út.

Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 brl. bátana sem Skipavík í Stykkilshólmi smíðaði. Hún var afhent árið 1977.

Ásbjörg ST 9 var gerð út frá Hólmavík til ársins 1998 en síðustu árin var eigandi Frigg ST 69 ehf. á Hólmavík.

Árið 1998 kaupur Dynjandi ehf. útgerð bátinn sem heldur nafni sínu en verður RE 79. Árið síðar kaupir Skjálfandi ehf. á Húsavík bátinn og fær hann nafnið Alli Júl ÞH 5.

Vorið 2001 fær báturinn nafnið Valdimar SH 106, eigandi Snæfell ehf.

Á árunum 2004 – 2013 hét hann Númi, fyrst KÓ 24, því næst HF 62 og að lokum RE 44. Eigandi Hafgull ehf.

Árið 2013 er báturinn keyptur til Dalvíkur þar sem hann hefur síðan siglt undir nafninu Máni með ferðamenn á hvalaslóðir Eyjafjarðar.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd