Mundi Sæm SF 1

1631. Mundi Sæm SF 1 ex Gæfa SF 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Mundi Sæm SF 1 frá Hornafirði kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hann landaði stundum úthafsrækju hér.

Miðós hf. gerði bátinn út en hann var með heimahöfn á Hornafirði rúman áratug.

Báturinn hét upphaflega Fálkinn NS 325 og var smíðaður í Bátalóni árið 1982 fyrir Bakkfirðinga.

Fálkinn var seldur frá Bakkafirði árið 1985 og hefur heitið eftirfarandi nöfnum síðan: Sigurbára VE 249, Vestmannaeyjum. Sveinbjörg SH 317, Ólafsvík, Sveinbjörg ÁR 317, Þorlákshöfn, Vörðufell GK 205, Grindavík, Vörðufell SF 200, Hornafirði, Gæfa SF 2, Hornafirði,Mundi Sæm SF 1, Hornafirði, Goði AK 50, Akranesi og Lundaberg AK 50, Akranesi. 

Árið 2014 fékk báturinn það nafn sem hann ber í dag, Vonin KE 10. Báturinn er í eigu Köfunarþjónustu Sigurðar ehf. og heimahöfn hans Keflavík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd