5691. Núpur ÞH 201 ex Nunni EA 187. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Núpur ÞH 201 var smíðaður árið 1975 hjá Bátaverkstæði Birgirs Þórhallssonar á Akureyri og var 5,36 brl. að stærð. Upphaflega hét báturinn Unnur EA 35 og var smíðaður fyrir Harald Jóhannsson í Grímsey. Árið 1979 fékk hann nafnið Nunni EA 87 og 1981 varð … Halda áfram að lesa Núpur ÞH 201
Month: nóvember 2025
Sæmundur HF 85
638. Sæmundur HF 85 ex Sæmundur Sigurðsson HF 85. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæmundur HF 85, sem liggur hér utan á Fróða ÁR 33 í Hafnarfjarðarhöfn um árið, hét upphaflega Björgvin EA 311 frá Dalvík. Á vefnum aba.is segir að báturinn var smíðaður úr eik á Akureyri, í skipasmíðastöð Nóa Kristjánssonar, fyrir Ríkissjóð eftir teikningu Þorsteins Daníelssonar. Báturinn var … Halda áfram að lesa Sæmundur HF 85
Fossborg ÁR 31
571. Fossborg ÁR 31 ex Fossborg RE 31. Ljósmynd Vigfús Markússon. Fossborg ÁR 31 var smíðuð upp úr nótabát á Sauðaárkróki árið 1962 og hét upphaflega Hjörtur Laxdal SK 106 með heimahöfn á Króknum. Frá Sauðaárkróki fór báturinn árið 1969 og bar hann eftirfarandi nöfn upp frá því: Margrét Helgadóttir AK 108, Margrét Helgadóttir SH … Halda áfram að lesa Fossborg ÁR 31
Óli RE 93
1418. Óli RE 93 ex Óli SI 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Óli RE 93 hét upphaflega Ægir Adólfsson ÞH 99 og átti heimhöfn á Raufarhöfn. Báturinn, sem var 8 brl. að stærð, var smíðaður af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri árið 1975. Ægir Adólfsson ÞH 99 var gerður út frá Raufarhöfn í tíu ár … Halda áfram að lesa Óli RE 93
Bessi og Hringur
1913. Hringur SH 277 - 2013. Bessi ÍS 410. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér birtist mynd sem tekin var í Hafnarfirði, sennilega árið 1998, sem sýnir skuttogarann Bessa ÍS 410 í flotkvínni og smábátinn Hring SH 277 þar sem hann liggur utan á öðrum bátum. Bessi var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, í Flekkefjord … Halda áfram að lesa Bessi og Hringur
Hvalnes GK 376
865. Hvalnes GK 376 ex Vikar Árnason KE 121. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hvalnes GK 376 hét upphaflega Einar Hálfdáns ÍS 8 og var smíðaður hjá Skipasmíðastöð Austfjarða hf. á Seyðisfirði árið 1947. Báturinn bar nafnið Hvalnes GK 376 árin 1986 til 1989 en lesa má nánar um bátinn hér. Báturinn var tekinn af skipaskrá vorið … Halda áfram að lesa Hvalnes GK 376
Við Húsavíkurhöfn
Við Húsavíkurhöfn 15. nóvember 2025. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin við Húsavíkurhöfn sl. laugardag en veður hefur verið afskaplega stillt og gott að undanförnu. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution.
Guðbjörg GK 9
3020. Guðbjörg GK 9. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Guðbjörg GK 9 kom til Grindavíkur úr sínum fyrsta róðri í dag og tók Jón Steinar þessa myndaseríu af bátnum sem er í eigu Stakkavíkur. Báturinn, sem smíðaður var í Tyrklandi, kom með flutningaskipi til landsins haustið 2023 en lokafrágangur fór fram hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Guðbjörg … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 9
Eyvindur KE 37
865. Eyvindur KE 37 ex Hvalnes GK 376. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Eyvind KE 37 þar sem hann liggur utan á Sandgerðingi GK 268 í Sandgerðishöfn. Eyvindur hét upphaflega Einar Hálfdáns ÍS 8 og var smíðaður á Seyðisfirði árið 1947. Báturinn, sem var 42 brl. að stærð, var með heimahöfn í Bolungarvík … Halda áfram að lesa Eyvindur KE 37
Bára SH 264
1404. Bára SH 264 ex Bára NS 64. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Hér gefur að líta Báru SH 264 upp á landi á Rifi sumarið 1986 ef minni mitt bregst mér ekki. Bára, sem var 7 brl. að stærð, var smíðuð á Ólafsfirði og lauk smíði hennar árið 1974. Upphaflega hét báturinn Sindri ÓF 20 … Halda áfram að lesa Bára SH 264









