2900. Beitir NK 123 ex Gitte Henning S 349. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar sendi drónann sinn um sjö kílómetra á haf út í dag til að mynda Beiti NK 123 þar sem hann sigldi fulla ferð í gegnum Reykjanesröstina áleiðis á síladarmiðin fyrir vestan land. Skipið, sem áður hét Gitte Henning S 349, … Halda áfram að lesa Beitir NK 123
Day: 23. nóvember, 2025
Hrappur GK 89
756. Hrappur GK 89 ex Sólveig RE 96. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hrappur GK 89 er hér að koma úr línuróðri um árið en hann var gerður út frá Grindavík. Hrappur var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1959 og hét upphaflega Sigurvon GK 206 frá Grindavík. Báturinn, sem var 11 brl. að stærð, fékk nafnið … Halda áfram að lesa Hrappur GK 89
Núpur ÞH 201
5691. Núpur ÞH 201 ex Nunni EA 187. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Núpur ÞH 201 var smíðaður árið 1975 hjá Bátaverkstæði Birgirs Þórhallssonar á Akureyri og var 5,36 brl. að stærð. Upphaflega hét báturinn Unnur EA 35 og var smíðaður fyrir Harald Jóhannsson í Grímsey. Árið 1979 fékk hann nafnið Nunni EA 87 og 1981 varð … Halda áfram að lesa Núpur ÞH 201
Sæmundur HF 85
638. Sæmundur HF 85 ex Sæmundur Sigurðsson HF 85. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæmundur HF 85, sem liggur hér utan á Fróða ÁR 33 í Hafnarfjarðarhöfn um árið, hét upphaflega Björgvin EA 311 frá Dalvík. Á vefnum aba.is segir að báturinn var smíðaður úr eik á Akureyri, í skipasmíðastöð Nóa Kristjánssonar, fyrir Ríkissjóð eftir teikningu Þorsteins Daníelssonar. Báturinn var … Halda áfram að lesa Sæmundur HF 85



