
Samkvæmt vef Fiskistofu hefur Valdimar GK 195 fengið nafnið Grímsi GK 555 með heimahöfn í Njarðvík.
Kaupandinn er Admiral ehf sem er fyrirtæki í eigu Sigvalda Eiríks Hólmgrímssonar.
Báturinn var smíðaður í Noregi 1982 og lengdur 1987.
Valdimar ehf. í Vogum á Vatnsleysuströnd keypt hann til landsins 1999 og fékk báturinn nafnið Vesturborg GK til að byrja með en fékk síðan Valdimarsnafnið.
Grímsi, sem er 569 BT að stærð, bar nöfnin Vestborg, Aarsheim Senior og Bömmelgutt í Noregi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.