
Björn EA 220 úr Grímsey kemur hér að landi á Húsavík um árið en þar átti báturinn eftir að verða gerður út um árabil.
Upphaflega hét báturinn, sem smíðaður var í Noregi 1979, Gulaþing RE 126, en hann er tæplega 8 brl. að stærð.
Hann hefur síðan borið nöfnin Jófríður Ásmundsdóttir SH 59, Jónína ÍS 525, Sædís ÍS 525, Bresi AK 101, Björn EA 220, Eyrún ÞH 268, Fleygur ÞH 301 og Dögg SU 229 sem er það mnafn sem báturinn ber í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution