Jökull SK 16 sökk öðru sinni í Hafnarfjarðarhöfn

288. Jökull SK 16 sokkinn í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Eikarbáturinn Jökull SK 16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn um helgina og það ekki í fyrsta skipti.

Báturinn hefur legið um allanga hríð við bryggju í Hafnarfirði og sökk þar í fyrra skiptið árið 2020.

Líkt og þá lá Þorsteinn ÞH 115 utan á Jökli ásamt fleiri fleytum en það tókst að skera þá frá áður en illa fór.

Báturinn hét upphaflega Árni Geir KE 31 en árið 1970 fékk hann nafnið Þorsteinn Gíslason KE 31. 1975 fékk hann GK 2 á kinnunginn og heimahöfnin í Grindavík.

Í upphafi árs 2009 fékk hann nafnið Arnar í Hákoti SH 37 og heimahöfnin Ólafsvík.  Rúmlega ári síðar fær hann núverandi nafn Jökull SK 16 og heimahöfnin Sauðárkrókur.

288. Jökull SK 16 sokkinn í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson 2025.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd