Benni Sæm að veiðum

2430. Benni Sæm GK 26 ex Sæljón RE 19. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Jón Steinar tók þessar myndir sem nú birtast í gær af dragnótabátnum Benna Sæm GK 26 þar sem hann var að veiðum á Keflavík sem er rétt austan við Krísuvíkurberg, út af svo kölluðum Bergendum.

Benni Sæm hét upphaflega Sæljón RE 19 og var smíðaður í Dalian í Kína árið 2001.

Vorið 2003 kaupir Nesfiskur bátinn og hann fær nafnið Benni Sæm GK 26.

Benni Sæm hefur, líkt og Siggi Bjarna GK 5 sem einnig er í eigu Nesfisks, verið lengdur og fóru þær breytingar fram í Skipasmíðastöð Njarðvíkur árið 2014.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd