Njörður í kvöldsólinni

7311. Njörður ÞH 444 ex Hanna Ellerts SH 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Þessa mynd af strandveiðibátnum Nirði ÞH 444 tók ég í kvöldsól gærdagsins þar sem hann lá við bryggju á Húsavík.

Njörður hét áður Hanna Ellerts SH 4 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd