3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af togaranum Huldu Björnsdóttur GK 11 þegar hún hélt til veiða frá Grindavík í dag. Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir togarann út en hann var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 á útleið frá Grindavík
Day: 20. maí, 2025
Ronja Carrier
IMO 9452311. Ronja Carrier. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Seiðaflutningaskipið Ronja Carrier kom til Húsavíkur í dag en stoppaði stutt og er í þessum skrifuðu orðum á stími austur að Kópaskeri. Ronja Carrier var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2010 og hét upphaflega Oydrott. Skipið, sem siglir undir norskum fána og er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Ronja Carrier
Hawkerinn GK 64
7432. Hawkerinn GK 64 ex Binna GK 64. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér lætur Hawkerinn GK 64 reka á skakinu úti fyrir Hópsnesinu á dögunum en báturinn er með heimahöfn í Garðinum. Upphaflega hét báturinn Bjarney ÍS 204 frá Flateyri og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1995. Árið 1999 er heimahöfnin orðin … Halda áfram að lesa Hawkerinn GK 64


