
Jón Steinar tók þessar myndir af Vésteini GK 88 í vikunni þar sem hann var á landleið með um tólf tonna afla.
Vésteinn GK 88 bættist í flota Einhamars í Grindavík snemma árs 2018 en fyrir gerði fyrirtækið út Auði Vésteins SU 88 og Gísla Súrsson GK 8.
Bátarnir eru allir smíðaðir hjá Trefjum í Hafnarfirði af gerðinni Cleopatra 50. Búnir línubeitningarvélum.
Þeir eru tæplega 30 brúttótonn og tæpir 15 metrar á lengd.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution