263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Björg Jónsdóttir ÞH 321 er hér í Húsavíkurhöfn um árið, sennilega 1986, en hún var keypt hingað í janúar 1985. Báturinn hét upphaflega Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík og var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321
Month: apríl 2025
Hafborgin dregur netin á Eyjafirði
2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar náði þesum myndum af Hafborginni EA 152 þar sem hún var að draga netin á Eyjafirði. Ljósmyndarinn skrifar svo síðu sinni Báta og bryggjurölt: Hafborg var við netaveiðar inni á Eyjafirði í dag en hún stundar þessa dagana vísindaveiðar á vegum Hafró eða svokallað … Halda áfram að lesa Hafborgin dregur netin á Eyjafirði
Rán KE 37
728. Rán KE 37 ex Rán AK 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rán KE 37 kemur hér tilhafnar í Njarðvík um árið en báturinn var 58 brl. að stærð. Rán var smíðuð árið 1958 hjá Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði og bar einkennisstafin ÍS 51 og heimahöfnin var Hnífsdalur. Átta árum síðar er báturinn kominn … Halda áfram að lesa Rán KE 37
Ágúst RE 61
1260. Ágúst RE 61 ex Jóhann Pálsson SU 30. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ágúst RE 61 var smíðaður á Siglufirði árið 1972 og hét upphaflega Jóhann Pálsson SU 30 frá Stöðvarfirði. Árið 1976 fær hann nafnið Ágúst RE 61 og bar það til ársins 2012 en sögu bátsins má lesa nánar á aba.is Með því að smella … Halda áfram að lesa Ágúst RE 61
Ástríkur VE 3
1587. Ástríkur VE 3 ex Belló BA 13. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Ástríkur VE 3 kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í gær en þangað var báturinn keyptur á dögunum. Báturinn bar áður nafnið Belló BA 13 en hét upphaflega Már NS 87 og var smíðaður árið 1981 í Bátalóni í Hafnarfirði. Hér má lesa sögu … Halda áfram að lesa Ástríkur VE 3
Neisti HU 5
1834. Neisti HU 5 ex Jökull SF 75. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Neisti HU 5 kemur hér til hafnar í Reykjavík á öðrum degi páska þetta árið og með þessum myndum óska ég lesendum gleðilegs sumar með þökk fyrir innlitið á síðuna í vetur. Neisti HU 5, sem gerður er út af Sigga afa ehf., … Halda áfram að lesa Neisti HU 5
Kristján HF 100 á landleið
2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér er Kristján HF 100 á landleið til Grindavíkur í gærkvöldi baðaður geislum kvöldsólarinnar en hann var að veiðum rétt austan við Grindavík. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist 30 brúttótonn. … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 á landleið
Særún EA 251
2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk II SU 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Grásleppubáturinn Særún EA 251 kemur hér að landi á Húsavík nú síðdegis en það er GPG Seafood ehf. sem gerir bátinn út Særún hét upphaflega Nanna Ósk II ÞH 133 frá Raufarhöfn og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2010. 2793. Særún … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Olíuskipið Keilir
2946. Keilir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Olíuskipið Keilir er hér á ferðinni um Sundin á öðrum degi páska en hann er í eigu Olíudreifingar. Keilir var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir undir íslensku flaggi og er 496 … Halda áfram að lesa Olíuskipið Keilir
Brimsvala SH 262
7527. Brimsvala SH 262. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Brimasvala SH 262 var smíðuð fyrir samnefnt fyrirtæki hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 2003. Báturinn, sem er af gerðinni Sómi 795, var upphaflega með heimahöfn í Stykkishólmi en frá árinu 2012 er heimahöfnin Staðarsveit. 7527. Brimsvala SH 262. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2025. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Brimsvala SH 262









