
Árni í Teigi GK 1 kemur hér að landi í Grindavík um árið en hann var af gerðinni Cleopatra 38.
Báturinn var smíðaður fyrir Reyni Jóhannsson í Grindavík í Trefjum í Hafnarfirði árið 2000. Árið 2003 skráður eigandi Víkurberg ehf. í Grindavík.
Árið 2005 fékk báturinn nafnið Jói Berg GK 33, sami eigandi.
Árið 2006 keypti Einar Sigurðsson (Útgerðarfélagið Röðull) bátinn til Raufarhafnar og fékk hann í framhaldinu nafnið Björn Jónsson ÞH 345.
Snemma árs 2014 höfðu Útgerðarfélagið Röðull ehf. og Æður ehf. á Hólmavík bátaskipti og fékk báturinn nafnið Hilmir ST 1 sem hann ber enn þann dag í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution