Gísli Súrsson GK 8 kemur að

2878. Gísli Súrsson GK 8. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Á þessum myndum Jóns Steinars frá því í gær gefur að líta línubátinn Gísla Súrsson GK 8 koma að landi í Grindavík. Gísli Súrsson er af gerðinni Cleopatra 50 frá Trefjum líkt og Auður Vésteins SU 88 og Vésteinn GK 88 en bátarnir eru gerðir … Halda áfram að lesa Gísli Súrsson GK 8 kemur að

Þorsteinn KE 10

310. Þorsteinn KE 10 ex Oddrún RE 126. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Þorsteinn KE 10 sem upphaflega hét Breiðfirðingur SH 101 og var smíðaður í Danmörku árið 1955. Breiðfirðingur var 28 brl. að stærð búinn 140 hestafla Hundestad díeselvél. Hann var smíðaður fyrir Arnar Sigurðsson, Kristján Guðmundsson og Rögnvald Ólafsson á Hellisandi.  … Halda áfram að lesa Þorsteinn KE 10

Sigurvon ÁR 121

2161. Sigurvon ÁR 121 ex Sigurvon RE 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Handfærabáturinn Sigurvon ÁR 121 kemur hér til Grindavíkur í gær en þar var fyrsta heimahöfn bátsins. Báturinn hét upphaflega Hallvarður á Horni GK 111 og var smíðaður 1992 hjá Mótun í Hafnarfirði fyrir Hafstein Sæmundsson útgerðarmann í Grindavík. Hefur í gegnum tíðina … Halda áfram að lesa Sigurvon ÁR 121

Bergur og Vestmannaey lönduðu fullfermi í Grindavík í gær

2964. Bergur VE 44 ex Bergey VE 144 - 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Vestmannaeyjaskipin Bergur VE 44 og Vestmannaey VE 144 lönduðu báðir fullfermi í Grindavík í gær. Byrjað var að landa úr Bergi klukkan tólf á hádegi og svo Vestmannaey afgreidd í kjölfarið. Megnið af aflanum fór til vinnslu … Halda áfram að lesa Bergur og Vestmannaey lönduðu fullfermi í Grindavík í gær