
Netabáturinn Sunna Líf GK 61 var að draga netin fyrir utan Straumsvík sl. laugardag þegar Jón Steinar tók þessar myndir sem nú birtast.
Sunna Líf hét upphaflega Dagný ÞH 203 frá Grenivík og var smíðuð árið 1978 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd.
Báturinn hefur borið nöfnin Dagný AK 140, Dagný SH 199, Þórunn Jósefsdóttir SH 199, Vörðunes GK 45, Katrín GK 98, Gaui gamli VE 6 og Gaui gamli VE 66.
Árið 1997 fékk báturinn nýverandi nafn og var KE 7, síðar KE 71 og frá árinu 2018 GK 61 með heimahöfn í Sandgerði.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution