Ásbjörg og Ásdís

1487. Ásbjörg ST 9 – 1434. Ásdís ST 37 ex Kristín ÁR 101. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993.

Sumarið 1993 komu bátar vestan af Ströndum nokkrum sinnum til Húsavíkur og lönduðu þar úthafsrækju.

Þar á meðal voru Ásbjörg ST 9 og Ásdís ST 37 sem gerðir voru út af Bassa ehf. á Hólmavík.

Báðir bátarnir innlend smíði, Ásbjörg smíðuð í Skipavík í Stykkishólmi og afhent árið 1977. Ásdís hét upphaflega Hildur Stefánsdóttir ÞH 204 og var smíðuð hjá Vélsmiðjunni Stál á Seyðisfirði. Hún var afhent árið 1975.

Í dag heitir Ásbjörg Máni og er gerður út til hvalaskoðunar frá Dalvík en Ásdís ber nafnið Stapafell SH 26.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd