
Hér liggja við bryggju á Árskógssandi bátarnir Særún EA 251, Sólrún EA 151 og Heiðrún EA 28 sem var nýlögst að.
Myndin var tekin ca. 1985 að vori ef ég man rétt.
Eini báturinn sem enn er í flotanum er Sólrún sem í dag heitir Bjössi Sör og er gerður út til hvalaskoðunar frá Húsavík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution