Jón á Hofi kom og fór

1645. Jón á Hofi SI 42 ex Jón á Hofi ÁR 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Jón á Hofi SI 42 sem Ísfélagið hf. gerir út til rækjuveiða kom til Húsavíkur í dag til að taka veiðafæri um borð.

Jón á Hofi var áður ÁR 42 en einkennisstöfunum var breytt í SI sumarið 2024.

Áður hét skipið Þuríður Halldórsdóttir GK 94 en Rammi hf. í Fjallabyggð keypti það af Þorbirni hf. sumarið 2007

Upphaflega hét skipið Hafnarey SU 110 frá Breiðdalsvík og var eitt af raðsmíðaskipunum svokölluðu. Smíðað 1983 hjá Þorgeir & Ellert á Akranesi.

Jón á Hofi er 38,99 metrar að lengd, 8,1 metra breiður og mælist 274 brl./497 BT að stærð.

Skipt var um brú á skipinu fyrir nokkrum árum í Póllandi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd