Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom til Húsavíkur í dag en stoppaði stutt, eiginlega örstutt en erindið var að setja menn frá Hafró í land.
Skipið, sem hefur verið við loðnuleit síðustu daga ásamt Polar Ammassak, lagðist að Bökugarðinum og er þetta stærsta fiskiskip sem lagst hefur að bryggju á Húsavík. Held ég síðast sagði ég þetta þegar Beitir NK 123 kom hingað í nóvember 2021..
Aðalsteinn Jónsson SU 11 er 94 metrar að lengd og tæpir 18 metrar á breidd. Skipið mælist 4,419 BT að stærð.
Skipið var smíðað í Fitjar Mek. Verksted í Noregi (skrokkurinn í Rússlandi) og var afhentur árið 2004.
Eskja keypti skipið til Íslands sumarið 2016.






Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
