Guðný ÍS 266 í slippnum á Akureyri

483. Guðný ÍS 266 ex Sunnutindur SU 59. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Guðný ÍS 266 er hér í slipp á Akureyri um árið en upphaflega hét báturinn Sunnutindur SU 59 frá Djúpavogi. Sunnutindur SU 59 var smíðaður hjá Gebr. Gehusenstedt K.G. í Bardenfleth í A-Þýskalandi fyrir Búlandstind hf. og kom fyrst til heimahafnar þann 8 febrúar … Halda áfram að lesa Guðný ÍS 266 í slippnum á Akureyri

Eyrún ÞH 2

7449. Eyrún ÞH 2 ex Sigurbára VE 249. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Eyrún ÞH 2, sem hér siglir hér með Húsavíkurhöfðanum á ágústkvöldi árið 2014, hét upphaflega Guðfinna VE 249. Báturinn var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1996. Báturinn hefur borið nafnið Eyrún ÞH 2 frá árinu 2000 og heimahöfn hans Húsavík. Með … Halda áfram að lesa Eyrún ÞH 2

Galti ÞH 320

973. Galti ÞH 320 ex Ljósfari RE 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Galti ÞH 320 kemur hér til Húsavíkur eftir að Brík hf. keypti bátinn af Útgerðarfélaginu Barðanum í febrúarmánuði árið 1987. Brík hf. var þá nýstofnað félag í eigu Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. og Langaness hf. á Húsavík. Galti hét upphaflega upphaflega Dagfari ÞH 40 … Halda áfram að lesa Galti ÞH 320

Svalbarði í slipp á Akureyri

1352. Svalbarði SI 302 ex Svalbakur EA 302. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Skuttogarinn Svalbarði SI 302 er hér í slipp á Akureyri en hann hét áður Svalbakur EA 302. Útgerðarfélag Akureyringa keypti systurskipin Stellu Karinu og Stellu Kristinu frá Færeyjum árið 1973 og komu þau til heimahafnar á Akureyri í desember það ár. Skipin voru byggð … Halda áfram að lesa Svalbarði í slipp á Akureyri

Heiðrún EA 28 í breytingum í Vestnes

72. Heiðrún EA 28 ex Grótta AK 101. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1987. Heiðrún EA 28 er hér í breytingum en hún var yfirbyggð og skipt um brú í Aas Mek. Verksted AS í Vestnes í Noregi sumarið 1987. Hér má lesa nánar um bátinn en Gylfi Baldvinsson á Árskógssandi keypti hann frá Akranesi árið 1984. … Halda áfram að lesa Heiðrún EA 28 í breytingum í Vestnes