
Flutningaskipið Misje Viola kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum.
Skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka.
Misje Viola var smíðað á Sri Lanka árið 2023 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen.
Skipið er 89,95 metra langt, breidd þess er 15,4 metrar og það mælist 3,492 GT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution