
Hólmaborg SU 11 kom eitt sinn til Húsavíkur þegar skipið stundaði úthafsrækjuveiðar og þá var þessi mynd tekin.
Upphaflega Eldborg HF 13 sem var smíðuð árið 1978 en tíu árum síðar var skipið selt til Eskifjarðar þar sem það fékk nafnið Hólmaborg SU 11.
Árið 1996 var skipið lengt um 14 metra í Gdynia í Póllandi og jókst burðargeta skipsins úr 1.600 tonnum í 2.500 tonn.
Þegar Eskja keypti Aðalstein Jónsson SU 11 árið 2006 fékk Hólmaborgin nafnið Jón Kjartansson SU 111 sem breyttist í SU 311 þegar nýr Jón Kjartansson SU 111 var keyptur frá Skotlandi.
Eftir að hafa legið við bryggju í nokkur ár var skipið selt í brotajárn vorið 2024.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution