
Súlan EA 300 frá Akureyri liggur hér við bryggju á Siglufirði um árið, c.a 1988-1989.
Súlan var smíðuð fyrir Leó Sigurðsson hjá Ankerlökken Verft Glomn Fredrikstad í Noregi og var með smíðanúmer 167 hjá stöðinni. Skipið var afhent í desember árið 1967
Súlan átti sér eitt systurskip í íslenska floatnm en það var Heimir SU 100 sem síðar varð Hákon ÞH 250. Hákon var smíðaður hjá hjá Ankerlökken Verft Florö. Heimild: Ægir.
Súlan var 354 brl. að stærð en eftir lengingu í Hollandi árið 1974 og yfirbyggingu ári síðar mældist skipið 391 brl. að stærð. Árið 1983 er skráður eigandi Súlur h/f á Akureyri.
Súlan EA 300 fór til Póllands í breytingar árið 1996 sem gerðar voru í skipasmíðastöðinni Nauta í Gdynia.
Þær fólust m.a í sex metra lengingu, nýrri brú og bakka.
Um Súluna má lesa nánar hér en Síldarvinnslan á Neskaupsstað keypti hana árið 2007 og þrem árum síðar fór hún utan í brotajárn.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution