Reistarnúpur ÞH 273

586. Reistarnúpur ÞH 273 ex Aron ÞH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

 Rækjubáturinn Reistarnúpur ÞH 273 frá Raufarhöfn kemur hér að landi á Húsavík eftir róður á Skjálfanda um árið.

Reistarnúpur, sem áður hét Aron ÞH 105, var gerður út af Jökli hf. á Raufarhöfn sem keypti bátinn haustið 1997.

Báturinn sem var 76 brl. að stærð hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn h/f á Ísafirði. 

Báturinn bar síðan nöfnin Hrönn ÍS 46, Sæbjörg SH 23, Farsæll SH 30, Langanes ÞH 321, Björg Jónsdóttir ÞH 321, Fagranes ÞH 123, Aron ÞH 105, Reistarnúpur ÞH 273 og að lokum Stormur SH 333.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd