
Hvannaberg ÓF 72 er hér a toginu á rækjumiðunum út af Norðurlandi um árið en Sæberg hf., síðar Þormóður rammi-Sæberg, gerði hann út.
Hvannaberg, sem var 475 brl. að stærð, hét áður Baldur EA 108 en Snorri Snorrason útgerðarmaður á Dalvík keypti togarann frá Grænlandi í lok árs 1993.
Í 10 tbl. Ægis árið 1995 var skrifað um skipið og m.a þetta:
Skip þetta, sem upphaflega hét Nokasa (síðar Nattoralik), er smíðað árið 1978 (afhent í október) fyrir Grœnlendinga hjá Sterkoder Mek. Verksted A/S, Kristiansund í Noregi, smíðanúmer 51 hjá stöðinni.
Skipið er hannað af Skipsteknisk A/S í Álesund og er smíðað sem skuttogari með búnað til rœkjuvinnslu.
Árið 1984 var skipið lengt um 11.0 m og byggð íbúðarhœð undir brú.
Vorið 1995 var Baldur EA 108 seldur Sæbergi hf. á Ólafsfirði og fékk hann þá nafnið Hvannaberg ÓF 72.
Hvannabergið var selt úr landi vorið 1998.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.