
Samkvæmt fréttum í dag hefur hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson HF 30 verið seldur til Noregs.
Um Bjarna Sæmundsson er það að segja að skipið var smíðað í Þýskalandi árið 1970 og afhent Hafrannsóknastofnun í desember sama ár.
Skipið er 56 metra langt og 10,6 metra breitt, dýpt að efra þilfari er 7,0 metrar. Í skipinu eru þrjár vélar, 410 kw. hver. Ef keyrt er á öllum vélum er ganghraði skipsins um 12 sjómílur.
Á skipinu er 14 manna áhöfn og auk þess er aðstaða fyrir 13 vísinda- og rannsóknarmenn. Heimild Haf og vatn.is
Með þessari færslu fylgir vatnslitamynd af Bjarna Sæm en hér má skoða myndasyrpu af skipinu.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.