
Hér liggur Fagranesið við bryggju á Húsavík rétt eftir að nafnaskiptin í janúar árið 1985.
Báturinn hét áður Björg Jónsdóttir ÞH 321 en hafði verið seldur til Þórshafnar þegar Langanes hf. keypti Gandí VE 171.
Fagranesið, sem var 76 brl. að stærð, hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn h/f á Ísafirði.
Báturinn bar síðan nöfnin Hrönn ÍS 46, Sæbjörg SH 23, Farsæll SH 30, Langanes ÞH 321, Björg Jónsdóttir ÞH 321, Fagranes ÞH 123, Aron ÞH 105, Reistarnúpur ÞH 273 og að lokum Stormur SH 333.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution