
Aron ÞH 105 kemur hér að landi á Húsavík eftir dragnótaróður á Skjálfanda um árið.
Báturinn sem var 76 brl. að stærð hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn h/f á Ísafirði.
Báturinn bar síðan nöfnin Hrönn ÍS 46, Sæbjörg SH 23, Farsæll SH 30, Langanes ÞH 321, Björg Jónsdóttir ÞH 321 og Fagranes ÞH 123 áður en hann fékk það nafn sem hann ber á myndinni.
Síðar fékk báturinn nafnið Reistarnúpur ÞH 273 og að lokum Stormur SH 333.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution