Kristbjörg II í slipp á Akureyri

1009. Kristbjörg II ÞH 244 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Kristbjörg II ÞH 244 er hér í slipp á Akureyri vorið 1992 og niður fór hún fagurrauð sem Kristbjörg ÞH 44.

Báturinn hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í Noregi.

Sóley ÍS 225 hét síðar Sóley ÁR 50Þuríður Halldórsdóttir GK 94, Kristbjörg II ÞH 244, Kristbjörg ÞH 44 og að lokum Röst SK 17 en hún fór í niðurrif í Belgíu árið 2017.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd