Bergur Vigfús GK 53

967. Bergur Vigfús GK 53 ex Keflvíkingur KE 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Bergur Vigfús GK 53 hét upphaflega Keflvíkingur KE 100 og var hann fyrstur í röð átján báta sem Þjóðverjar smíðuðu fyrir Íslendinga í Boizenburg á árunum 1964-1967. 

Keflvíkingur KE 100 hét þessu nafni í rúmlega 30 ár en báturinn var lengdur og yfirbyggður árið 1978 og mældist eftir það 265 brl. að stærð.

Árið 1996 fékk Keflvíkingur nafnið Bergur Vigfús GK 53 og var með heimahöfn í Garði.

Það nafn bar hann til ársins 2001 er hann var seldur til Grindavíkur þar sem hann fékk nafnið Marta Ágústsdóttir GK 31. Árið 2006 var GK 14 var sett á bátinn.

Árið 2012 fékk báturinn sitt síðasta nafn, Þórsnes SH 109, sem hann bar þangað til að hann fór í pottinn í Ghent í Belgíu um mitt ár 2017. Þá reyndar SH 198.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd