Vestri II í slipp í Reykjavík

182. Vestri II BA 630 ex Vestri BA 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025.

Vestri II BA 630 er í slipp í Reykjavík þessa dagana en hann hefur ekki verið í útgerð frá því nýi Vestri leysti hann af hólmi árið 2022.

Báturinn hét upphaflega Sigurður Jónsson SU 150 frá Breiðdalsvík og var smíðaður í Noregi árið 1963.

Vestri ehf. keypti bátinn til Patreksfjarðar frá Stykkishólmi árið 2005 en þar bar hann nafnið Grettir SH 104.

Önnur nöfn sem báturinn hefur borið í gegnum tíðina eru Sædís ÁR 220, Steinanes BA 399 og Ólafur Ingi KE 34.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd