Hinni á Skjálfanda

1547. Hinni ÞH 70 ex Sveinn Sveinsson BA 325. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Hinni ÞH 70 er hér á siglingu á Skjálfanda í júní 2005 en hann var þá við dragnótaveiðar.

Báturinn hét upphaflega Neisti HU 5 og var smíðaður í Básum hf. í Hafnarfirði árið 1979. Hann er 24 brl. að stærð og heitir Draumur í dag og er gerður út til hvalaskoðunar frá Dalvík.

Það var Auðrún ehf. sem gerði Hinna ÞH 70 út frá Húsavík árin 2003-2007 en báturinn var keyptur frá Patreksfirði þar sem hann bar nafnið Sveinn Sveinsson BA 325. 

Áður hafði hann borið nöfnin Stapavík AK 123 og Þorsteinn SH 145 auk upprunalega nafnsins, Neisti HU 5.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd