Síldarvinnslan kaupir Þóri SF 77 sem fær nafnið Birtingur

2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2019.

Síldarvinnslan hf. hefur keypt Þóri SF 77 af Skinney-Þinganesi hf. á Hornafirði og mun hann fá nafnið Birtingur NK 119.

Efirfarandi má lesa um kaupin á heimasíðu fyrirtækisins:

Síldarvinnslan hefur fest kaup á ferskfisktogaranum Þóri af Skinney – Þinganesi á Hornafirði. Togarinn er einnig búinn til netaveiða.

Skipið er smíðað árið 2009 í Taiwan og er það 637 brúttótonn að stærð. Árið 2019 voru gerðar gagngerar endurbætur á skipinu en þá var það lengt um 10 metra, bakki yfirbyggður, stýri endurnýjað, brúin hækkuð, íbúðir endurnýjaðar að miklu leyti og öll önnur aðstaða áhafnar endurbætt.

Í skipinu er fullkominn vinnslubúnaður frá Micro ehf þar sem aflinn er meðal annars tegundagreindur og stærðarmetinn með myndavélatækni. Stór hluti spilkerfis hefur verið endurnýjaður og nýr spilstjórnunarbúnaður var settur í skipið á þessu ári.

Skipið mun fá nafnið Birtingur og einkennisstafina NK 119.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd