
Rækjutogarinn Vestri BA 63 frá Patreksfirði kom til hafnar á Húsavík í dag og hafði hér stutta viðdvöl.
Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar þann 9. apríl árið 2022.
Í Noregi hét togarinn Tobis en fékk nafnið Vestri BA 63 og kom í stað eldri og minni báts með sama nafni.
Vestri var smíðaður í Danmörku árið 2009 og er 40 metra langur og 580 tonn að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution