Tu­uga­alik

IMO:9922897. Tuugaalik GR-6-10. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024.

Græn­lenski frysti­tog­ar­inn Tu­uga­alik GR-6-10 kom til Hafnarfjarðar á dögunum en þar landar togarinn reglulega.

Togarinn, sem er nýr og glæsilegur eins og lesa má um hér, var nokkuð laskaður að sjá en hann  rakst á borga­rís­jaka í mik­illi þoku við veiðar milli Græn­lands og Íslands. 

Lesa nánar um það hér.

Tuugaalik var smíður hjá Astilleros de Murueta skipasmíðastöðinni í Bilbao hvar ég sigldi hjá sumarið 2019 en þá var Avataq GR-6-19 þar í smíðum.

Tuugaliik er 82,30 metrar að lengd, breidd hans er 18 metrar og hann mælist 5.505 GT að stærð. Eigandi skipsins er Qaleralik A/S og heimahöfn þess Nuuk.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd